Lykilleikmaður 11. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður KR Matthías Orri Sigurðarson.
Í sterkum sigri KR gegn ÍR var Matthías Orri besti leikmaður vallarins. Á rúmum 33 mínútum spiluðum skilaði hann 19 stigum, 5 fráköstum, 9 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var hann einkar skilvirkur í leiknum, með 70% skotnýtingu og 29 framlagsstig.
Hér fyrir neðan ber einnig að líta tölfræði fyrir lengra komna sem Hörður Tulinius setti saman, en í henni má sjá hversu góðan leik Matthías átti í Hellinum í gær.
- umferð – Larry Thomas
- umferð – Dominykas Milka
- umferð – Logi Gunnarsson
- umferð – Dominykas Milka
- umferð – Antonio Hester
- umferð – Dedrick Deon Basile
- umferð – Michael Mallory II
- umferð – Everage Lee Richardson
- umferð – Larry Thomas
- umferð – Pavel Ermolinskij
- umferð – Matthías Orri Sigurðarson