HomeFréttirSíðustu forvöð: Forskráningu fyrir vorönn í Körfuboltaskóla Ægis lýkur á sunnudaginn

Síðustu forvöð: Forskráningu fyrir vorönn í Körfuboltaskóla Ægis lýkur á sunnudaginn

Forskráning fyrir vorönn í Körfuboltaskóla Ægis stendur nú sem hæst en henni lýkur núna á sunnudaginn. Það eru því síðustu forvöð fyrir áhugasama að tryggja sér pláss áður en skráningunni lokar.

Skólinn er leiddur af landsliðsfyrirliðanum Ægi Þór Steinarssyni og er ætlaður metnaðarfullum krökkum á aldrinum 7 til 10 ára sem hafa þegar tekið sín fyrstu skref í körfubolta og vilja byggja ofan á grunntækni sína í litlum hópum. Æfingarnar fara fram á sunnudagsmorgnum í íþróttahúsinu við Sjálandsskóla og er hópnum skipt í tvo aldursflokka; Verðandi stjörnur (7–8 ára, árgangar 2018–2019) og Ungar stjörnur (9–10 ára, árgangar 2016–2017).

Hámarksfjöldi í hvorum hóp er 25 iðkendur til að tryggja persónulega nálgun og gæði þjálfunar. Við skráningu fylgir æfingasett frá Errea, 15% afsláttur í verslun Errea ásamt því að 15% systkinaafsláttur er í boði.

Allar nánari upplýsingar og forskráningu fyrir vorönnina má nálgast á vefsíðu skólans hér

Fréttir
- Auglýsing -