Körfuboltaakademía Borche Ilievski (BIBA) stendur fyrir sérstökum jólakörfuboltabúðum fyrir unga iðkendur dagana 19. til 21. desember næstkomandi.
Búðirnar eru opnar bæði strákum og stelpum á aldrinum 9 til 14 ára og fara fram í íþróttahúsi HK í Kórnum (Vallakór 12–14) í Kópavogi. Æft verður alla þrjá dagana frá klukkan 09:00 til 12:00.
Áhersla verður lögð á tækniæfingar, skemmtilegar þrautir, leiki og keppnir ásamt því að efla félagsskapinn í jólaandanum. Þá fá þátttakendur einnig sérmerkta BIBA-jólakörfuboltabúðaboli í tilefni viðburðarins.
Allar nánari upplýsingar um dagskrá og framkvæmd má finna á auglýsingum akademíunnar.





