Sænski framherjinn Ali Dibba hefur slitið hásin og mun ekki leika meira með Keflavík í Bónusdeild karla á tímabilinu. Dibba varð fyrir þessum alvarlegu meiðslum í tapi liðsins gegn Stjörnunni í Garðabæ í gærkvöldi, en þetta var aðeins annar leikur hans fyrir félagið síðan hann gekk til liðs við það fyrir rúmri viku síðan.
Atvikið átti sér stað seint í leiknum og mátti sjá í útsendingu Sýnar Sport hvernig Dibba féll niður sárþjáður og þurfti í kjölfarið að bera hann af velli. Fram að því hafði hann átt afar öflugan leik fyrir Keflavík og skorað 18 stig áður en hann meiddist.
Vísir greindi frá þessu í dag og hafði eftir Daníel Guðna Guðmundssyni, þjálfara Keflavíkur, að um gríðarlegt áfall væri að ræða fyrir bæði leikmanninn og liðið, enda væri þetta annar atvinnumaður Keflavíkur sem verður fyrir alvarlegum meiðslum á skömmum tíma.
„Þetta er náttúrulega mjög leitt, hugur minn er hjá honum. Þetta er sár raunveruleiki íþróttafólks, að lenda í meiðslum og því miður var það í þessu tilfelli hjá Ali,“ sagði Daníel Guðni í samtali við Vísi og bætti við að kappinn þyrfti nú að gangast undir aðgerð og langa endurhæfingu í kjölfarið.
Að sögn þjálfarans ber Dibba sig þó vel miðað við aðstæður og er þakklátur fyrir stuðninginn sem félagið veitir honum. Keflvíkingar eiga einn leik eftir fyrir komandi landsleikjahlé og segir Daníel að liðið þurfi nú að snúa bökum saman og endurmeta stöðuna áður en næstu skref verða ákveðin.




