spot_img

Lykill: Michael Mallory

Lykilleikmaður 21. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Hattar Michael Mallory.

Í gríðarlega mikilvægum sigri Hattar á Haukum í Hafnarfirði var Michael besti leikmaður vallarins. Á rúmum 37 mínútum spiluðum skilaði hann 38 stigum, 6 fráköstum, 8 stoðsendingum og stolnum bolta, en hann setti niður fimm þrista úr níu tilraunum í leiknum. Í heildina fékk hann 37 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

  1. umferð – Larry Thomas
  2. umferð – Dominykas Milka
  3. umferð – Logi Gunnarsson
  4. umferð – Dominykas Milka
  5. umferð – Antonio Hester
  6. umferð – Dedrick Deon Basile
  7. umferð – Michael Mallory II
  8. umferð – Everage Lee Richardson
  9. umferð – Larry Thomas
  10. umferð – Pavel Ermolinskij
  11. umferð – Matthías Orri Sigurðarson
  12. umferð – Styrmir Snær Þrastarson
  13. umferð – Deane Williams
  14. umferð – Ivan Aurrecoechea Alcolado
  15. umferð – Hörður Axel Vilhjálmsson
  16. umferð – Dedrick Deon Basile
  17. umferð – Pétur Rúnar Birgisson
  18. umferð – Deane Williams
  19. umferð – Styrmir Snær Þrastarson
  20. umferð – Zvonko Buljan
  21. umferð – Michael Mallory II
Fréttir
- Auglýsing -