Framkvæmdir við byggingu nýrrar Þjóðarhallar hefjast formlega fimmtudaginn 12. nóvember næstkomandi þegar fyrsta skóflustungan verður tekin í Laugardalnum. Með tilkomu mannvirkisins eignast íslenskur körfuknattleikur, sem og aðrar innanhússíþróttir, langþráðan heimavöll sem stenst allar alþjóðlegar kröfur.
Íslensk körfuknattleikslandslið hafa um árabil þurft að leika heimaleiki sína á undanþágum frá FIBA vegna ófullnægjandi aðstöðu í gömlu Laugardalshöllinni sem vígð var árið 1965. Nýja höllin mun gjörbylta allri umgjörð í kringum körfuboltann hér á landi og gera Íslandi kleift að halda stórmót og alþjóðlega leiki án undanþága.
Ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og félögum í Laugardal tekur fyrstu skóflustunguna að loknum ávörpum fulltrúa ríkis, borgar og íþróttahreyfingarinnar.
Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., fagnar þessum merka áfanga:
„Ný Þjóðarhöll verður heimavöllur landsliðanna okkar og vettvangur stórra stunda, og hún bætir jafnframt aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal. Það er við hæfi að ungt afreksíþróttafólk taki fyrstu skóflustunguna, því það er fyrir það og komandi kynslóðir sem við byggjum þetta hús.“
Byggingin rís sunnan við Laugardalshöll og tengist bæði henni og Frjálsíþróttahöllinni. Mannvirkið verður um 17.700 fermetrar að stærð, rúmar 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 gesti á stórviðburðum. Íslenskir aðalverktakar munu sjá um hönnun og framkvæmdir ásamt samstarfsaðilum sínum en verksamningur upp á 16,825 milljarða króna var undirritaður í haust. Verkefnið er fjármagnað sameiginlega af ríkissjóði og Reykjavíkurborg.
Áætlað er að Þjóðarhöllin verði tilbúin til notkunar í janúar 2030.




