Bónus deild karla heldur áfram í kvöld með einum leik þar sem Sindri tekur á móti Val á Hornafirði klukkan 19:15.
Um er að ræða mikilvæga viðureign fyrir bæði lið en gjörólík staða blasir við þeim í töflunni. Heimamenn í Sindra leita enn að sínum fyrsta sigri á tímabilinu og sitja á botninum eftir fjögur töp í fyrstu fjórum umferðunum. Valsmenn hafa hins vegar farið frábærlega af stað, unnið alla fjóra leiki sína og geta með sigri í kvöld jafnað KR að stigum á toppi deildarinnar með tíu stig.




