spot_img
HomeFréttirLykill: Everage Richardson

Lykill: Everage Richardson

Lykilleikmaður 18. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Hauka Everage Richardson.

Efyir að hafa átt nokkuð erfitt með að ná í stig í síðustu umferðum komust Haukar aftur á sigurbraut nú á miðvikudag með góðum sigri gegn grönnum sínum úr Stjörnunni. Everage var besti leikmaður vallarins þar, en á um 32 mínútum spiluðum skilaði hann 28 stigum, 6 fráköstum og 8 stoðsendingum. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, með 5 af 9 fyrir utan þriggja stiga línuna, 100% vítanýtingu og 32 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn

  1. umferð – Chaz Williams / Njarðvík
  2. umferð – Dominykas Milka / Njarðvík
  3. umferð – Ægir Þór Steinarsson / Stjarnan
  4. umferð – Osku Heinonen / Haukar
  5. umferð – Jordan Semple / Þór
  6. umferð – Kristinn Pálsson / Valur
  7. umferð – Chaz Williams / Njarðvík
  8. umferð – Sigurður Pétursson / Keflavík
  9. umferð – Kristinn Pálsson / Valur
  10. umferð – Remy Martin / Keflavík
  11. umferð – Adam Eiður Ásgeirsson / Höttur
  12. umferð – Everage Richardson / Breiðablik
  13. umferð – Remy Martin / Keflavík
  14. umferð – Deandre Kane / Grindavík
  15. umferð – Nemanja Knezevic / Höttur
  16. umferð – Dedrick Basile / Grindavík
  17. umferð – Dedrick Basile / Grindavík
  18. umferð – Everage Richardson / Haukar
Fréttir
- Auglýsing -