Lykill: Jordan Semple

Lykilleikmaður 5. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Þórs Jordan Semple.

Í sterkum sigri Þórs gegn spræku liði nýliða Álftaness var Jordan besti leikmaður vallarins. Á tæpum 33 mínútum spiluðum skilaði hann 25 stigum, 14 fráköstum, 6 stoðsendingum, 4 stolnum boltum og 2 vörðum skotum. Þá var hann einnig nokkuð skilvirkur í leiknum með 75% skotnýtingu.

Lykilleikmenn

  1. umferð – Chaz Williams / Njarðvík
  2. umferð – Dominykas Milka / Njarðvík
  3. umferð – Ægir Þór Steinarsson / Stjarnan
  4. umferð – Osku Heinonen / Haukar
  5. umferð – Jordan Semple / Þór