spot_img
HomeFréttirLykill: Ægir Þór Steinarsson

Lykill: Ægir Þór Steinarsson

Lykilleikmaður 3. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Stjörnunnar Ægir Þór Steinarsson.

Í nokkuð mikilvægum sigri Stjörnunnar gegn Hamri í Frystikistunni var Ægir besti leikmaður vallarins. Á 37 mínútum spiluðum í leiknum skilaði hann 40 stigum, 10 fráköstum, 7 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Þá var hann einkar skilvirkur í leiknum með aðeins 2 tapaða bolta, rúma 76% skotnýtingu og 52 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn

  1. umferð – Chaz Williams / Njarðvík
  2. umferð – Dominykas Milka / Njarðvík
  3. umferð – Ægir Þór Steinarsson / Stjarnan
Fréttir
- Auglýsing -