Alvarleg meiðsli hrúgast nú upp á fyrstu vikum NBA-tímabilsins og hafa dregið dilk á eftir sér fyrir mörg helstu lið deildarinnar. Anthony Edwards verður frá í tvo mánuði eftir hnéspeglun, og lið Oklahoma City Thunder situr eftir í sárum en bæði Jalen Williams og Cason Wallace eru meiddir til langs tíma auk þess sem Chet Holmgren missir af næstu tveimur mánuðum vegna hnésmeiðsla. Á sama tíma sitja menn eins og Kawhi Leonard, Paolo Banchero, Tyrese Haliburton og Ja Morant allir á hliðarlínunni með margvísleg vöðva- og fótameiðsli.
Þessi mikli fjöldi meiðsla fékk körfuboltaspekinginn Bill Simmons til að láta öll spjót standa á deildinni og framkvæmdastjóranum Adam Silver. Simmons heldur því fram að 82 leikja álagið sé farið að stórskaða bæði leikmenn og íþróttina sjálfa og vill sjá deildarkeppnina skorinn niður í 70 leiki hið minnsta:
„Ef þú ræðir við bókstaflega hvern einasta körfuboltamann myndu allir segja að leikjunum yrði að fækka,“ sagði Simmons. „Þið eruð að eyðileggja leikmennina, gera íþróttina verri og stytta ferla fólks. Ef ekki verður gripið í taumana núna tel ég þetta ekkert annað en vanræksla og græðgi.“




