Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur sektað tvo leikmenn eftir hita í leik Tindastóls og Álftaness á dögunum.
Martins Laksa, leikmaður Álftaness, þarf að greiða 40.000 krónur vegna óíþróttamannslegrar háttsemi í leiknum. Þá var Óliver Ólafsson hjá Tindastóli sektaður um 15.000 krónur fyrir að yfirgefa varamannabekkinn þegar uppþot eða átök brutust út, þótt hann hafi ekki tekið frekari þátt í sjálfum átökunum.




