Lykilleikmaður 11. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Fjölnis Dagný Lísa Davíðsdóttir.
Í gífurlega öruggum sigri Fjölnis á Haukum í Dalhúsum var Dagný Lísa besti leikmaður vallarins. Á tæpum 38 mínútum spiluðum skilaði hún tröllatvennu, 25 stigum og 20 fráköstum. Þá bætti hún við 3 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og vörðu skoti. Einnig var hún nokkuð skilvirk í leiknum, með 60% skotnýtingu og 40 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
Lykilleikmenn:
- umferð – Ameryst Alston / Val
- umferð – Ameryst Alston / Val
- umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
- umferð – Anna Ingunn Svansdóttir / Keflavík
- umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
- umferð – Sanja Orozovic / Fjölnir
- umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
- umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
- umferð – Robbi Ryan / Grindavík
- umferð – Dagný Lísa Davíðsdóttir / Fjölnir
- umferð – Dagný Lísa Davíðsdóttir / Fjölnir
Mynd / Fjölnir FB