Lykilleikmaður 8. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur Daniela Morillo.

Í mjög svo öruggum sigri Keflavíkur á heimakonum í Skallagrím var Daniela besti leikmaður vallarins. Á rúmum 33 mínútum spiluðum skilaði hún 22 stigum, 16 fráköstum, 9 stoðsendingum, 6 stolnum boltum og 2 vörðum skotum. Þá var hún einnig nokkuð skilvirk í leiknum með 41 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:

  1. umferð – Ameryst Alston / Val
  2. umferð – Ameryst Alston / Val
  3. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
  4. umferð – Anna Ingunn Svansdóttir / Keflavík
  5. umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
  6. umferð – Sanja Orozovic / Fjölnir
  7. umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
  8. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík