Einn leikur er á dagskrá í Bæjarins Beztu deild kvenna í kvöld þegar Vesturbæingar í KV taka á móti Aþenu klukkan 18:30.
Bæði lið leita leiða til að rétta sinn hlut eftir fremur brösuga byrjun á leiktíðinni. Aþena situr í áttunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir tvo sigra í fyrstu fimm leikjum sínum og getur með sigri í kvöld jafnað Keflavík b og Breiðablik með sex stig í 5.–7. sæti. Heimakonur í KV eru hins vegar í níunda sæti með tvo punkta eftir einn sigur í fyrstu fjórum umferðunum og geta jafnað Aþenu og Njarðvík b að stigum fari þær með sigur af hólmi.
Bæjarins Beztu deild kvenna
Áherslumerki KV – Aþena kl. 18:30




