HomeBónus deildinBónus deild karlaStórkostlegur áfangi: Dæmdi sinn 2.500 leik á vegum KKÍ í Síkinu

Stórkostlegur áfangi: Dæmdi sinn 2.500 leik á vegum KKÍ í Síkinu

Sigmundur Már Herbertsson, einn reynslumesti dómari landsins, náði magnaðri vörðu á dómaraferli sínum í kvöld þegar hann dæmdi viðureign Tindastóls og ÍR í Bónus deild karla í Síkinu á Sauðárkróki. Leikurinn var nefnilega hans 2.500 leikur á vegum Körfuknattleikssambands Íslands.  

Sigmundur hóf dómgæslu árið 1994 og hefur því verið með flautuna á lofti í 32 ár. Hann fagnaði áfanganum að leik loknum ásamt meðdómurum sínum í kvöld, þeim Birgi Erni Hjörvarssyni og Jóni Þór Eyþórssyni, með veglegri tertu.  

Að sögn Sigmundar var kvöldið sérstaklega eftirminnilegt þar sem leikurinn var jafnframt hinn árlegi Bangsaleikur Stólanna til styrktar félaginu Einstök börn. Sigmundur sagði á samfélagsmiðlum eftir leik að enn væri jafn gaman að standa á gólfinu og vonaðist til að ógleymanlegu augnablikin yrðu enn fleiri á komandi árum.

Hér má sjá færslu Sigmundar á samfélagsmiðlinum Facebook

Fréttir
- Auglýsing -