Orri og Swans Gmunden á siglingu í Austurríki

Orri Gunnarsson og Swans Gmunden lögðu Flyers Wels í úrvalsdeildinni í Austurríki, 81-61.

Á tæpum 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Orri 9 stigum, 4 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.

Orri og Swans eru eftir leikinn í 2. sæti deildarinnar með fimm sigra eftir fyrstu sex umferðirnar.

Tölfræði leiks