HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaYfirgefur Bónus deildina og heldur á kunnulegar slóðir

Yfirgefur Bónus deildina og heldur á kunnulegar slóðir

Skallagrímur hefur náð samkomulagi við Magnús Engil um að ganga aftur til liðs við félagið úr Ármanni fyrir átökin í vetur. Þar með snýr hann aftur í kunnuglegar slóðir í Fjósinu í Borgarnesi.

Borgnesingar fagna komu Magnúsar innilega og binda miklar vonir við endurkomu hans, en í tilkynningu félagsins kemur fram að hann sé frábær sóknarmaður sem muni koma með ferska vinda inn í leik liðsins, auk þess að vera einstakur liðsmaður sem smellpassar inn í leikmannahópinn.

Magnús kveðst sjálfur gríðarlega spenntur fyrir því að klæðast gulu treyjunni á nýjan leik og segir að ákvörðunin hafi verið einföld eftir gott spjall við Pálma. Hann bætir við að móttökurnar í hópnum hafi verið frábærar frá fyrsta degi. Að lokum skaut kappinn því að með bros á vör að hann væri örvhentur, sem gæti reynst andstæðingum Skallagríms erfiður biti að verjast á vellinum.

Fréttir
- Auglýsing -