HomeFréttirAfskrifar Lakers þrátt fyrir draumabyrjun

Afskrifar Lakers þrátt fyrir draumabyrjun

Þótt Los Angeles Lakers fari mikinn í upphafi tímabils í NBA-deildinni telur hinn umdeildi sjónvarpsmaður Stephen A. Smith að liðið muni ekki fara alla leið og hampa meistaratitlinum.

Lakers státar af besta árangri allra liða í deildinni með tíu sigra í fyrstu tólf leikjum sínum fyrir komandi leik gegn Milwaukee Bucks, undir stjórn JJ Redick og nýrra eigenda. Luka Doncic hefur farið á kostum og stimplað sig inn í MVP-umræðuna með 39,3 stig, 7,8 fráköst og 7,9 stoðsendingar að meðaltali í leik, á meðan Austin Reaves hefur skilað 25,3 stigum og Walker Kessler haldið uppi varnarleiknum undir körfunni með tvennu að meðaltali.

Þrátt fyrir fljúgandi byrjun og meiðslavandræði hjá helstu keppinautunum í Vesturdeildinni, svo sem Oklahoma City Thunder og Denver Nuggets, sagði Smith í þætti sínum að hann hefði fulla trú á því að Lakers kæmist ekki lengra en í aðra umferð úrslitakeppninnar. Lýsti hann því yfir að hann hefði aldrei séð NBA-lið vinna meistaratitil þar sem þrír bestu leikmenn liðsins væru hvítir á hörund, eins og nú háttar um tríóið Doncic, Reaves og Kessler, og kvaðst ekki eiga von á því að það myndi breytast á þessari leiktíð.

Fréttir
- Auglýsing -