Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Snekkjupopparinn Jón Frí og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds. Þar sem Jón Frí var nýstiginn af sviðinu á Iceland Airwaves um helgina var kjörið tækifæri til að slá á léttari strengi undir lok þáttarins og stilla upp hinu eina sanna úrvalsliði körfuboltans skipuðu tónlistarmönnum hátíðarinnar.
Snögg sérfræðiúttekt félaganna leiðir í ljós að þetta lið væri nálægt því að vera fullgilt í 40+ flokkinn á Molduxamótinu 2028 – og ljóst er að þeir yrðu þar til alls líklegir.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Úrvalslið Iceland Airwaves ’26 Poppara

- Leikstjórnandi (PG): Daði Birgisson (Jagúar, Monotown, Jónfrí)Sterkur varnarlega og mætir með frábæra stroku. Stýrir spilinu og heldur taktinum í sóknarleiknum.

- Skotbakvörður (SG): Valdimar Guðmundsson (Valdimar, Lón)Frábær söngrödd og skotstroka to die for. Kemur með mikla nærveru og banvæna skotógn utan af velli.

- Lítill framherji (SF): Arnar Freyr Frostason (Úlfur Úlfur)Í toppstandi og líklega orðheppnasti maður landsins. Hann talar skít allan leikinn á meðan hann pakkar andstæðingnum saman á vellinum.
- Kraftframherji (PF): Helgi Sæmundur Guðmundsson (Úlfur Úlfur)Alvöru muscle. Hinn fullkomni enforcer á blokkinni – líkamlegi styrkurinn sem er nauðsynlegur þegar byrjunarliðið er á mörkum þess að vera of „soft“.

- Miðherji (C): Jón Frímannsson (Jónfrí)Snekkjupoppari með alvöru hæð í teignum. Kemst ennþá furðuvel upp og niður völlinn og gæti sett nokkra þrista á sínum besta degi.

Sjötti maðurinn (6th Man):
- Teitur Magnússon: Silkimjúkar hreyfingar sem gefa glæsilegum lagabálki hans ekkert eftir. Límið í búningsklefanum sem bindur þennan óútreiknanlega hóp saman.




