Jón Axel duglegur að mata liðsfélagana gegn Cantabria

Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante báru sigurorð af Cantabria í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 89-79.

Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 8 stigum, 3 fráköstum og 9 stoðsendingum, en hann var stoðsendingahæsti leikmaður vallarins í leiknum.

Eftir leikinn er Alicante í 8.-10. sæti deildarinnar með 3 sigra og 3 töp eftir fyrstu sex umferðirnar.

Tölfræði leiks