Lykill: Emilie Hesseldal

Lykilleikmaður 5. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Njarðvíkur Emilie Hesseldal.

Í nokkuð góðum útisigri liðsins gegn nýliðum Þórs í Höllinni á Akureyri var Emilie besti leikmaður vallarins. Á tæpum 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði hún 15 stigum, 19 fráköstum, 5 stoðsendingum, 4 stolnum boltum og vörðu skoti. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum með 30 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn

  1. umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
  2. umferð – Raquel Laneiro / Fjölnir
  3. umferð – Emile Hesseldal / Njarðvík
  4. umferð – Denia Davis Stewart / Stjarnan
  5. umferð – Emilie Hesseldal / Njarðvík