HomeÚti í heimiEvrópaBilbao hafði betur gegn Alba Berlín í Íslendingaslag Meistaradeildarinnar

Bilbao hafði betur gegn Alba Berlín í Íslendingaslag Meistaradeildarinnar

Bilbao situr á toppi G-riðils Meistaradeildar Evrópu í körfuknattleik með sex stig eftir 83:75 heimasigur á þýska liðinu Alba Berlín á Spáni í gærkvöldi. Alba Berlín er einnig með sex stig í öðru sæti riðilsins, en efsta sætið gefur beinan þátttökurétt í 16-liða úrslitum á meðan liðin í öðru og þriðja sæti þurfa að fara í gegnum umspil.  

Tveir af lykilmönnum íslenska landsliðsins mættust í leiknum og lögðu sitt af mörkum fyrir sín lið. Martin Hermannsson lék í 19 mínútur fyrir gestina frá Berlín og skilaði 11 stigum, einu frákasti og einni stoðsendingu.  

Hjá sigurvegurunum í Bilbao spilaði miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason í fimmtán mínútur og nýtti þann tíma vel, en hann skoraði 6 stig, reif niður fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Fréttir
- Auglýsing -