Lykilleikmaður 18. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Keflavíkur Deane Williams.
Í sigri í framlengdum naglbít gegn ÍR í Hellinum var Deane besti leikmaður vallarins. Á 38 mínútum spiluðum skilaði hann 34 stigum, 16 fráköstum, 4 stoðsendingum og 2 vörðum skotum. Skotnýting hans til fyrirmyndar, var í heildina með 70% skotnýtingu og 86% skotnýtingu inni í teig. Í heildina var hann með 47 framlagsstig fyrir frammistöðuna, en það er það næst hæsta sem leikmaður hefur skilað í einum leik í vetur.

- umferð – Larry Thomas
- umferð – Dominykas Milka
- umferð – Logi Gunnarsson
- umferð – Dominykas Milka
- umferð – Antonio Hester
- umferð – Dedrick Deon Basile
- umferð – Michael Mallory II
- umferð – Everage Lee Richardson
- umferð – Larry Thomas
- umferð – Pavel Ermolinskij
- umferð – Matthías Orri Sigurðarson
- umferð – Styrmir Snær Þrastarson
- umferð – Deane Williams
- umferð – Ivan Aurrecoechea Alcolado
- umferð – Hörður Axel Vilhjálmsson
- umferð – Dedrick Deon Basile
- umferð – Pétur Rúnar Birgisson
- umferð – Deane Williams



