Lykill: Kaleb Higgins

Kaleb Lamar Higgins er Lykilleikmaður 7. umferðar Bónusdeildar karla eftir stórkostlega frammistöðu þegar Sindri skráði sig í sögubækurnar og vann sinn allra fyrsta sigur í efstu deild frá upphafi gegn Njarðvík á Höfn í kvöld, 107–101. 

Higgins var gjörsamlega óstöðvandi á vellinum og stýrði leik Hornfirðinga af miklu öryggi í tæpar 34 mínútur. Hann var aðeins tveimur fráköstum frá þrefaldri tvennu og endaði leikinn með 34 stig, 8 fráköst (þar af 3 sóknarfráköst) og 10 stoðsendingar, sem skilaði honum hvorki meira né minna en 44 framlagsstigum. 

Skotnýting hans var til fyrirmyndar allan leikinn, en hann setti niður 13 af 20 skotum sínum utan af velli (65%), þar af 10 af 16 tveggja stiga skotum (62%) og 3 af 4 þriggja stiga skotum (75%). Þá nýtti hann öll fimm vítaskotin sín (100%), fiskaði sjö villur á leikmenn Njarðvíkur og tapaði aðeins einum bolta á öllum leiknum. Þess að auki vann Sindri mínúturnar hans á vellinum með 16 stigum (+16). 

Með þessari mögnuðu frammistöðu lagði Higgins grunninn að sögulegum tímamótum hjá Sindra á fyrsta tímabili félagsins í efstu deild.

Lykilleikmenn – Bónus deild karla:

  1. umferð – Atli Freyr Haraldsson Katrínarson / Valur
  2. umferð – Ragnar Ágústsson / Tindastóll
  3. umferð – Sigurður Pétursson / Álftanes
  4. umferð – Jamir Chaplin / Keflavík
  5. umferð – Linarda Jaunzems / KR
  6. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  7. umferð – Kaleb Higgins / Sindri
Fréttir
- Auglýsing -