HomeBónus deildinBónus deild karlaLykill: Þórir Guðmundur Þorbjarnarson

Lykill: Þórir Guðmundur Þorbjarnarson

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, leikmaður KR, er lykilleikmaður sjöttu umferðar Bónusdeildar karla í körfuknattleik eftir stórkostlega frammistöðu í tuttugu stiga sigri Vesturbæinga gegn Hetti á Meistaravöllum í gærkvöldi, 112–92. Með sigrinum sitja KR-ingar einir og taplausir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, tólf stig eftir fyrstu sex umferðirnar.

Þórir Guðmundur lék á als oddi á þeim 32 mínútum sem hann spilaði í leiknum og skilaði samtals 39 framlagsstigum. Hann var stigahæstur á vellinum með 27 stig og var í raun hársbreidd frá þrefaldri tvennu, en hann gaf einnig 9 stoðsendingar og tók 6 fráköst, öll í vörninni. Þá bætti hann við 3 stolnum boltum.

Skotnýting hans í leiknum var til fyrirmyndar, en hann hitti úr 9 af 14 skotum sínum utan af velli sem gerir 64 prósenta skotnýtingu. Þar af setti hann niður 5 af 7 tveggja stiga skotum sínum (71%), 4 af 7 þriggja stiga skotum (57%) og nýtti 5 af 6 vítaskotum sínum (83%). Það sem gerir tölfræðina enn glæsilegri er að hann tapaði ekki einum einasta bolta allan leikinn þrátt fyrir að vera með boltann mikið í höndunum og gefa níu stoðsendingar, auk þess sem hann fiskaði þrjár villur á andstæðinga sína.

Lykilleikmenn – Bónus deild karla:

  1. umferð – Atli Freyr Haraldsson Katrínarson / Valur
  2. umferð – Ragnar Ágústsson / Tindastóll
  3. umferð – Sigurður Pétursson / Álftanes
  4. umferð – Jamir Chaplin / Keflavík
  5. umferð – Linarda Jaunzems / KR
  6. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
Fréttir
- Auglýsing -