Jamir Chaplin var valinn lykilleikmaður fjórðu umferðar Bónus deildar karla eftir magnaða frammistöðu í 112–99 heimasigri Keflavíkur gegn Hetti í Blue-höllinni.
Chaplin spilaði tæpar 36 mínútur og fór á kostum í sóknarleiknum þar sem hann skoraði 39 stig og sýndi fáheyrða skotnýtingu. Hann setti niður 16 af 19 skotum sínum utan af velli sem gerir 84% nýtingu og hitti úr öllum tólf tveggja stiga tilraunum sínum sem er fullkomin 100% nýting ásamt því að setja niður fjóra af sjö þristum sínum.
Chaplin lét einnig mikið til sín taka á öðrum sviðum vallarins en hann gaf 6 stoðsendingar reif niður 5 fráköst þar af þrjú í sókn varði 3 skot stal einum bolta og fiskaði 8 villur á leikmenn Hattar. Hann lauk leik með +14 í plús og mínus og hvorki meira né minna en 45 framlagsstig sem innsiglaði stórkostlegt kvöld hjá kappanum.

Lykilleikmenn – Bónus deild karla:
- umferð – Atli Freyr Haraldsson Katrínarson / Valur
- umferð – Ragnar Ágústsson / Tindastóll
- umferð – Sigurður Pétursson / Álftanes
- umferð – Jamir Chaplin / Keflavík





