Sjöundu umferð Bónusdeildar karla lauk í kvöld með tveimur öflugum heimasigrum áður en deildin fer í landsleikjahlé. Keflavík vann 13 stiga sigur gegn Tindastóli á meðan Sindri fagnaði sínum allra fyrsta sigri í efstu deild frá upphafi gegn Njarðvík.
Úrslit kvöldsins í Bónusdeild karla:
- Sindri 107 – 101 Njarðvík
- Keflavík 92 – 79 Tindastóll
Með sigrinum fer Keflavík upp í þriðja sæti deildarinnar með 10 stig, jafnt Val og Tindastóli að stigum. KR er áfram eitt og ósigrað á toppnum með 14 stig og Álftanes situr í öðru sæti með 12 stig. Í neðri hlutanum jafnaði Sindri bæði ÍR og Njarðvík að stigum með 2 stig í 9.–11. sæti, á meðan Ármann situr eitt á botninum án stiga.




