Breiðablik vann öruggan 104–91 heimasigur gegn Skallagrími í 8. umferð Bæjarins beztu deildar karla í Smáranum í kvöld.
Blikar lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik og leiddu með 23 stigum í hálfleik, 52–29 (22–16, 30–13). Borgnesingar klóruðu í bakkann í seinni hálfleik en forskot heimamanna var aldrei í hættu.
Adrian Darren McIntyre var maður leiksins hjá Breiðabliki með 29 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar, Veigar Elí Grétarsson skoraði 19 stig og tók 6 fráköst og Vojtěch Novák skilaði 17 stigum, 6 fráköstum og 5 stoðsendingum. Hjá Skallagrími voru Miljan Markovic (17 stig, 5 fráköst) og Sævar Alexander Pálmason (17 stig) stigahæstir.
Með sigrinum fer Breiðablik upp í 10 stig í sjötta sæti deildarinnar en Skallagrímur er áfram í ellefta sæti með 2 stig.
Viðtöl / Tómas Kárason




