Ragnar Ágústsson, leikmaður Tindastóls, var valinn besti maður annarrar umferðar í Bónus deild karla eftir framúrskarandi frammistöðu í öruggum 109–86 heimasigri Skagfirðinga gegn Ármanni í Síkinu.
Í fjarveru Adomas Drungilas nýtti Ragnar tækifærið til hins ýtrasta í byrjunarliðinu og spilaði nær óaðfinnanlegan körfubolta á þeim tæpu 24 mínútum sem hann var inni á vellinum. Hann skoraði 18 stig, tók átta fráköst (þar af fjögur í sókn), varði eitt skot, stal einum bolta og gaf eina stoðsendingu – án þess að tapa boltanum einu sinni allan leikinn.
Skotnýting Ragnars var hreint út sagt mögnuð; hann hitti úr sex af átta skotum sínum fyrir innan þriggja stiga línuna (75%) og setti niður öll sex vítaskotin sín (100%). Frammistaðan skilaði honum hæsta framlagi allra leikmanna í leiknum, 27 framlagsstigum, ásamt því að Stólarnir voru 21 stigi yfir á þeim mínútum sem hann spilaði (+21).
Tindastóll hefur unnið báða fyrstu leiki sína í deildinni og hefur frammistaða Ragnars sýnt hversu mikil breidd og gæði búa í hópnum fyrir komandi átök í vetur.

Lykilleikmenn – Bónus deild karla:
- umferð – Atli Freyr Haraldsson Katrínarson / Valur
- umferð – Ragnar Ágústsson / Tindastóll




