Lykilleikmaður 13. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður nýliða Fjölnis Ariel Hearn.
Í sterkum sigri nýliða Fjölnis á Skallagrím í Dalhúsum var Ariel besti leikmaður vallarins. Á tæpum 40 mínútum spiluðum skilaði hún 46 stigum, 13 fráköstum og 8 stoðsendingum. Þá setti hún 9 þriggja stiga skot í leiknum og var með 53 í framlag fyrir frammistöðuna, en það er það næst hæsta sem leikmaður hefur gert í einum leik í vetur.

- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Lina Pikciuté
- umferð – Lina Pikciuté
- umferð – Alyesha Lowett
- umferð – Isabella Ósk Sigurðardóttir
- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Ariel Hearn
- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Annika Holopainen
- umferð – Kiana Johnson
- umferð – Ariel Hearn
- umferð – Ariel Hearn



