Tindastóll mætir Parnu í beinni útsendingu hér kl. 16:00 í fyrsta leik FIBA Europe Cup

Íslandsmeistarar Tindastóls eru mættir til Parnu í Eistlandi þar sem liðið mun á næstu dögum taka þátt í forkeppni FIBA Europe Cup. Um er að ræða þriggja liða riðil þar sem liðið mun ásamt heimamönnum í Parnu mæta Trepca frá Kósovó, en aðeins eitt lið mun komast áfram úr riðlinum í keppnina.

Tindastóll hefur leik í dag þriðjudag, 3. október kl. 16:00 á íslenskum tíma á móti heimamönnum í Pärnu, en leikurinn verður í beinni útsendingu hér fyrir neðan.

Hérna er heimasíða mótsins