HomeBónus deildinBónus deild karlaHeiðruðu formenn sína í tilefni af 70 ára afmæli deildarinnar

Heiðruðu formenn sína í tilefni af 70 ára afmæli deildarinnar

Körfuknattleiksdeild KR fagnar um þessar mundir merku afmæli en 70 ár eru liðin frá stofnun hennar þann 4. október 1956. Af því tilefni voru formenn deildarinnar frá upphafi sérstakir heiðursgestir á leik KR og Sindra í Bónusdeild karla í DHL-höllinni á fimmtudag.

Alls hafa 29 einstaklingar gegnt formennsku hjá deildinni á þessum sjö áratugum. Fjórtán þeirra voru mættir í Frostaskjólið í gær og áttu saman ánægjulega stund fyrir leik. Þar fór Gísli Georgsson, fyrrverandi formaður, yfir sögu deildarinnar og Egill Ástráðsson, núverandi formaður, gerði grein fyrir stöðu félagsins í dag. Átta fyrrverandi formenn eru látnir og sjö komust ekki á viðburðinn.

Körfuknattleiksdeild KR færði formönnunum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag þeirra og forystu í gegnum árin.

Hér má sjá myndir frá athöfninni

Formenn körfuknattleiksdeildar KR frá upphafi

  • Pétur Rögnvaldsson (1956–1957) †
  • Sigurður P. Gíslason (1957–1958) †
  • Gunnhildur Snorradóttir (1958–1959) †
  • Helgi Sigurðsson (1959–1964) †
  • Halldór Sigurður Hafsteinn Sigurðsson (1964–1965) †
  • Þráinn Scheving Sigurjónsson (1965–1966)
  • Helgi Ágústsson (1966–1971)
  • Þorvaldur Blöndal (1971–1972) †
  • Hjörtur Hansson (1972–1974)
  • Jón Otti Ólafsson (1974–1976) †
  • Kolbeinn Pálsson (1976–1978)
  • Helgi Ágústsson (1978–1981)
  • Björgvin Schram (1981–1982)
  • Ágúst Líndal (1982–1983)
  • Benedikt Jónsson (1983)
  • Guðmundur Eiríksson (1984)
  • Gunnar Pálsson (1984–1985)
  • Kristinn Árnason (1986)
  • Gunnar Jóakimsson (1986–1988)
  • Ómar Þór Scheving (1988–1989)
  • Þorsteinn Gunnarsson (1989–1990)
  • Sófus Guðjónsson (1990–1991)
  • Ingólfur Möller Jónsson (1991–1993)
  • Sófus Guðjónsson (1993–1996)
  • Gísli Georgsson (1996–2000)
  • Magnús Guðmundsson (2000–2001)
  • Birgir Hákonarson (2001–2004)
  • Böðvar Guðjónsson (2004–2014)
  • Guðrún Kristmundsdóttir (2014–2018) †
  • Böðvar Guðjónsson (2018–2022)
  • Ellert Arnarson (2022–2024)
  • Egill Ástráðsson (2024–)
Fréttir
- Auglýsing -