Körfuboltalaugardagurinn býður upp á áhugaverða leiki í 1. deild kvenna og 2. deild karla þar sem stigin tvö eru mikilvæg í topp- og botnbaráttunni.
Í 1. deild kvenna fara fram þrír leikir. Klukkan 16:00 tekur Aþena á móti stigalausu liði Skallagríms, á sama tíma og Njarðvík b fær ósigrað lið Keflavíkur b í heimsókn í nágrannaslag á Suðurnesjum. Klukkan 18:00 mætast svo ungmennalið Hauka og KV á Ásvöllum.
Í 2. deild karla (A-riðli) tekur Fylkir á móti KR b klukkan 14:15 í Árbænum. KR b freistar þess að jafna efstu lið riðilsins með sigri en Fylkismenn leita að sínum öðrum deildarsigri.
2. deild karla (A-riðill):
14:15 Fylkir – KR b
1. deild kvenna:
16:00 Aþena – Skallagrímur
16:00 Njarðvík b – Keflavík b
18:00 Haukar u – KV





