Breytingar hafa verið gerðar á þjálfarateymi kvennaliðs Tindastóls og hefur Hlynur Freyr tekið við stöðu aðalþjálfara liðsins.
Hlynur Freyr þekkir vel til innan raða liðsins en hann hefur gegnt starfi aðstoðarþjálfara á Sauðárkróki og stígur nú upp í nýtt hlutverk. Samhliða ráðningu hans lætur Israel Martin af störfum sem aðalþjálfari kvennaliðsins. Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls sendi Martin kærar þakkir fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag, en að sögn deildarinnar fer viðskilnaðurinn fram í mikilli vináttu og gagnkvæmri virðingu.





