HomeBónus deildinBónus deild karlaSkýrir leikjaniðurröðunin afhroð Njarðvíkur og fullt hús Vals?

Skýrir leikjaniðurröðunin afhroð Njarðvíkur og fullt hús Vals?

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu Snekkjupopparinn JónFrí og Strikerinn Árni Jó til Davíðs Elds og fóru yfir stöðuna í Bónusdeild karla eftir fyrstu fimm umferðirnar. Sérstök rýni var lögð á leikjaniðurröðun liðanna og hversu erfiða andstæðinga þau hafa mætt hingað til (þar sem lægri tala táknar erfiðari leikjadagskrá).

Niðurstaðan varpar ljósi á ýmislegt – á meðan sum lið hafa nýtt sér léttari leikjaniðurröðun til að raða inn sigrum, hafa önnur sokkið djúpt undir þungri byrjun. Þegar frammistaðan er spegluð í erfiðleika leikjaniðurröðunarinnar standa Höttur, KR og Álftanes upp úr sem þau lið sem hafa staðið sig best, en Höttur landaði tveimur dýrmætum sigrum gegn þyngsta prógrammi deildarinnar á meðan KR (5–0) og Álftanes (4–1) unnu stórleiki og fóru afar vel í gegnum krefjandi leikjadagskrá; á hinum endanum hafa Njarðvík og Ármann staðið sig verst með því að vera bæði án stiga (0–5) eftir mikil vonbrigði og þungt prógramm, auk þess sem Stjarnan hefur valdið miklum vonbrigðum með aðeins tvo sigra (2–3) þrátt fyrir að hafa mætt mun auðveldari leikjaniðurröðun á pappírunum.

Njarðvíkingar hafa ekki enn unnið leik, en hafa mætt sterkum liðum.

1. Höttur — Erfiðleikastig: 4,4

Leikir: @Álftanes, @Stjarnan, ÍR, @Keflavík, Tindastóll

Árangur: 2–3

Héraðsmenn hafa mætt langþyngstu leikjaniðurröðuninni hingað til. Að landa tveimur sigrum í þessum leikjum er niðurstaða sem menn eystra hljóta að vera kátir með.

2. Njarðvík — Erfiðleikastig: 4,6

Leikir: Tindastóll, @KR, Valur, @Grindavík, Stjarnan

Árangur: 0–5

Þyngsli hvíla yfir Njarðvík. Leikjaniðurröðunin hefur verið gríðarlega strembin, en fimm töp í röð eru engu að síður miklu slappari byrjun en nokkur þorði að vona.

3. Ármann — Erfiðleikastig: 4,8

Leikir: Keflavík, @Tindastóll, @KR, @Valur, Grindavík

Árangur: 0–5

Byrjunin hefur ekki verið góð, þótt andstæðingarnir í leikjaniðurröðuninni hafi verið í þyngri kantinum. Ljóst er að breytingar hljóta að eiga sér stað og vonandi heppnast þær.

4. Sindri — Erfiðleikastig: 5,6

Leikir: ÍR, @Keflavík, Tindastóll, @KR, Valur

Árangur: 0–5

Ákveðin jákvæð teikn voru í fyrstu leikjunum en síðasti leikur var vondur. Nú fer maður að efast alvarlega um hvenær fyrsti sigurinn kemur í hús.

5. Álftanes — Erfiðleikastig: 5,8

Leikir: Höttur, @ÍR, Keflavík, @Tindastóll, KR

Árangur: 4–1

Miðað við umtalið átti þetta að vera 5–0, en miðað við að leikjaniðurröðunin er í erfiðari helmingi deildarinnar hlýtur að ríkja fín ánægja með fjóra sigra.

6. ÍR — Erfiðleikastig: 6,6

Leikir: @Sindri, Álftanes, @Höttur, @Stjarnan, Keflavík

Árangur: 1–4

Sem betur fer fyrir ÍR var Sindri fyrsti andstæðingurinn, því spilamennskan hefur ekki verið sannfærandi. Breiðhyltingar hefðu viljað sækja sigur gegn Hetti eða Stjörnunni.

7. KR — Erfiðleikastig: 7,0

Leikir: @Grindavík, Njarðvík, Ármann, Sindri, @Álftanes

Árangur: 5–0

Vesturbæingar hafa verið öflugir. Hafa klárað leikina sem þeir áttu að vinna og unnu leik sem þeir áttu ekki að vinna miðað við umtalið fyrir mót.

8. Grindavík — Erfiðleikastig: 7,2

Leikir: KR, @Valur, Stjarnan, Njarðvík, @Ármann

Árangur: 3–2

Grindvíkingar eru búnir með tvö ósigruðu liðin og mættu þeim þegar liðið var í henglum. Mega vel við una miðað við aðstæður.

9. Stjarnan — Erfiðleikastig: 7,6

Leikir: @Valur, Höttur, @Grindavík, ÍR, @Njarðvík

Árangur: 2–3

Væntingarnar voru miklu meiri í Garðabænum. Hafa tapað leikjum og ekki litið vel út – móralskt rúst gegn Njarðvík.

10. Valur — Erfiðleikastig: 7,8

Leikir: Stjarnan, Grindavík, @Njarðvík, Ármann, @Sindri

Árangur: 5–0

Valsmenn hafa mætt einni auðveldustu leikjaniðurröðun deildarinnar og nýtt hana til fulls. Hafa unnið alla fimm leikina og náð að slípa sig saman í leiðinni, þar sem Atli og Pablo hafa verið í stórum hlutverkum.

11. Tindastóll — Erfiðleikastig: 8,2

Leikir: @Njarðvík, Ármann, @Sindri, Álftanes, @Höttur

Árangur: 4–1

Árangur sem flestir bjuggust við miðað við léttari leikjaniðurröðun. Vissar efasemdir voru uppi um liðið en stórleikurinn gegn Álftanesi sýndi að öllum líkindum þeirra rétta andlit.

12. Keflavík — Erfiðleikastig: 8,4

Leikir: @Ármann, Sindri, @Álftanes, Höttur, @ÍR

Árangur: 4–1

Hafa haft auðveldustu leikjaniðurröðunina á pappírunum. Byrjuðu mjög sannfærandi og stóðu vel í Álftanesi í þrjá leikhluta. Síðustu tveir leikir voru ekki glæsilegir en þeir kláruðust – sem er ákveðið styrkleikamerki.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -