Einn leikur fer fram í Bónus deild karla í kvöld þegar Tindastóll tekur á móti ÍR í Síkinu á Sauðárkróki klukkan 19:15. Um er að ræða hinn árlega Bangsaleik Tindastóls til styrktar félaginu Einstök börn.
Stólarnir geta með sigri jafnað topplið KR og Vals á toppi deildarinnar með tíu stig en liðið hefur unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum. Breiðhyltingar sitja hins vegar í níunda sæti deildarinnar með tvo punkta eftir einn sigur í fyrstu fimm umferðunum og freista þess að sækja mikilvæg stig á erfiðum útivelli.
Bónus deild karla
Tindastóll – ÍR kl. 19:15




