Gríska stórveldið Panathinaikos greiðir hæstu leikmannalaun allra félaga í EuroLeague á yfirstandandi keppnistímabili samkvæmt nýrri úttekt körfuboltamiðilsins BasketNews.
Panathinaikos greiðir leikmönnum sínum um 34 milljónir evra hreint útborgað, en heildarrekstur félagsins liggur á bilinu 55 til 60 milljónir evra. Ísraelska liðið Hapoel Tel Aviv fylgir fast á hæla þeirra með um 29 milljónir evra í hrein leikmannalaun, en heildarfjárhagsáætlun félagsins er sú allra hæsta í Evrópu, eða 70 milljónir evra.
Spánarmeistarar Real Madrid verja um 44,4 milljónum evra í leikmannalaun fyrir skatta af 67,2 milljóna evra heildarfjárhag, sem þýðir að leikmenn liðsins fá á bilinu 22 til 24 milljónir evra í vasann. Erkiendur Panathinaikos, Olympiacos, greiða leikmönnum sínum um 22 milljónir evra hreint út, tyrkneska stórliðið Fenerbahce greiðir um 17 milljónir evra og Maccabi Tel Aviv um 15,5 milljónir evra.
Litháíska félagið Zalgiris Kaunas er meðal fárra liða sem opinberar allar sínar tölur en þar nema leikmannalaun leikmanna og þjálfara 19,7 milljónum evra fyrir skatta, sem gerir um 12 milljónir evra útborgað. Neðar á listanum má finna tyrkneska félagið Besiktas sem greiðir 9 til 10 milljónir evra hreint til leikmanna, Paris Basketball með um 8,2 milljónir evra og ASVEL með tæpar 7,9 milljónir evra.
Ítalíuliðin Olimpia Milan og Virtus Bologna eru með heildarrekstur upp á 40 og 25 milljónir evra en launakostnaður þeirra hefur ekki verið gefinn upp.
Eins og fram kemur í úttektinni geta heildartölur oft verið villandi þegar lið eru borin saman. Skattar og opinber rekstrargjöld eru til dæmis mun hærri í Frakklandi og Þýskalandi en víða í Suður- og Austur-Evrópu. Það gerir það að verkum að félög eins og Paris Basketball og Bayern München virðast með risavaxinn fjárhag á blaði en hafa í raun talsvert minna ráðstöfunarfé til að laða að sér bestu leikmenn heims miðað við lið í Grikklandi og Ísrael.




