Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí, Snekkjupopparinn og Strikerinn Árni Jó til Davíðs Elds og fara yfir víðan völl í körfuboltanum og menningarlífinu.
Farið er yfir helstu fréttir vikunnar og síðustu umferð í Bónusdeild karla. Þar ber hæst að Ólafur Björn Gunnlaugsson hefur yfirgefið Keflavík og er að öllum líkindum á leið í Breiðholtið til ÍR. Þá er staðan á KR krufin eftir sigur þeirra í Forsetahöllinni, ásamt því að rýnt er í frammistöðu liða í Bónusdeildinni í fyrstu fimm umferðunum miðað við hversu erfiða leikjadagskrá þau hafa mætt hingað til.
Fram undan er stórt landsliðsverkefni hjá A-landsliði kvenna sem leikur þrjá leiki á næstu tveimur vikum. Liðið hefur leik á miðvikudag gegn Írlandi ytra áður en kemur að tveimur heimaleikjum í Laugardalshöll gegn Sviss og Aserbaídsjan.
Félagarnir kíkja einnig yfir í Bæjarins besta deild karla og taka fyrir fimm leikmenn sem hafa farið sérstaklega vel af stað inn í nýtt tímabil.
Að lokum er slegið á léttari strengi, en JónFrí var að spila á Iceland Airwaves um helgina. Í tilefni þess stilltu sérfræðingarnir upp hinu fullkomna byrjunarliði skipuðu tónlistarmönnum sem komu fram á hátíðinni í ár.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




