Lykill: Jadakiss Guinn

Jadakiss Guinn, leikmaður Hauka, er lykilleikmaður 7. umferðar Bónusdeildar kvenna eftir frábæra frammistöðu í spennandi 98–94 útisigri gegn Njarðvík í Ljónagryfjunni.

Jadakiss lék í tæpar 42 mínútur (41:38) og fór fyrir Haukaliðinu á öllum sviðum vallarins. Hún skoraði 30 stig með 63% skotnýtingu utan af velli (12/19), þar af 10 af 16 í tveggja stiga skotum (62%), 2 af 3 í þriggja stiga skotum (66%) og 4 af 6 af vítalínunni. Þá tók hún 10 fráköst (4 sóknar- og 6 varnarfráköst), gaf 8 stoðsendingar, stal 3 boltum og varði 1 skot, sem skilaði henni alls 40 framlagsstigum.

Lykilleikmenn – Bónus deild kvenna:

  1. umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / KR
  2. umferð – Kolbrún María Ármannsdóttir / Tindastóll
  3. umferð – Ásta Júlía Grímsdóttir / Njarðvík
  4. umferð – Dazia Lawrence / KR
  5. umferð – Jadakiss Guinn / Haukar
  6. umferð – Abby Claire Beeman / Grindavík
  7. umferö – Jadakiss Guinn / Haukar
Fréttir
- Auglýsing -