HomeBónus deildinBónus deild kvennaLykill: Kolbrún María Ármannsdóttir

Lykill: Kolbrún María Ármannsdóttir

Kolbrún María Ármannsdóttir, leikmaður Tindastóls, hefur verið valin lykilleikmaður annarrar umferðar Bónus deildar kvenna eftir magnaða frammistöðu í stórsigri Tindastóls gegn Fjölni í Dalhúsum.

Kolbrún fór á kostum á báðum endum vallarins og skilaði öflugri tvennu; 21 stigi og 11 fráköstum. Hún lét einnig mikið að sér kveða í varnarleiknum, stal heilum 7 boltum og endaði með alls 31 framlagsstig í öruggum 101–67 sigri Tindastóls.

Lykilleikmenn – Bónus deild kvenna:

  1. umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / KR
  2. umferð – Kolbrún María Ármannsdóttir / Tindastóll
Fréttir
- Auglýsing -