HomeBónus deildinBónus deild kvennaLykill: Abby Claire Beeman

Lykill: Abby Claire Beeman

Abby Claire Beeman, leikstjórnandi Grindavíkur, var valin lykilleikmaður 6. umferðar í Bónus deild kvenna eftir ótrúlega frammistöðu í 97–93 útisigri gegn Íslandsmeisturum Njarðvíkur í IceMar höllinni. Sigurinn tryggði Grindvíkingum áframhaldandi toppsæti sem eina taplausa lið deildarinnar eftir sex leiki.

Beeman spilaði nánast allan leikinn, eða rúmar 39 mínútur, og fór á kostum á báðum endum vallarins. Hún skilaði glæsilegri þrefaldri tvennu, skoraði 21 stig með 58% nýtingu í tveggja stiga skotum (7 af 12), tók 12 fráköst, þar af fjögur í sókn, og stýrði spilinu af miklu öryggi með 14 stoðsendingum á móti aðeins þremur töpuðum boltum.

Þá var hún gríðarlega vinnusöm í vörninni þar sem hún stal þremur boltum, fiskaði átta villur á mótherjana og kláraði leikinn með hæsta framlag allra á vellinum eða 34 framlagsstig.

Lykilleikmenn – Bónus deild kvenna:

  1. umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / KR
  2. umferð – Kolbrún María Ármannsdóttir / Tindastóll
  3. umferð – Ásta Júlía Grímsdóttir / Njarðvík
  4. umferð – Dazia Lawrence / KR
  5. umferð – Jadakiss Guinn / Haukar
  6. umferð – Abby Claire Beeman / Grindavík
Fréttir
- Auglýsing -