HomeBónus deildinBónus deild kvennaLykill: Ásta Júlía Grímsdóttir

Lykill: Ásta Júlía Grímsdóttir

Ásta Júlía Grímsdóttir, leikmaður Njarðvíkur, hefur verið valin leikmaður 3. umferðar í Bónus deild kvenna eftir hreint magnaða frammistöðu í 115–97 útisigri gegn toppliði KR á Meistaravöllum.

Ásta Júlía fór algjörlega á kostum og lék lykilhlutverk í að snúa leiknum Njarðvíkingum í vil. Hún skilaði glæsilegri tvennu, 19 stigum og 13 fráköstum, á tæplega 29 mínútum á vellinum og nýtti skot sín frábærlega, en hún setti niður sjö af átta skotum sínum utan af velli (87% nýting). Þá varði hún tvö skot og fiskaði fimm villur, sem skilaði henni 33 framlagsstigum og gerði gæfumuninn í mikilvægum sigri.

Lykilleikmenn – Bónus deild kvenna:

  1. umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / KR
  2. umferð – Kolbrún María Ármannsdóttir / Tindastóll
  3. umferð – Ásta Júlía Grímsdóttir / Njarðvík
Fréttir
- Auglýsing -