HomeBónus deildinBónus deild kvennaLykill: Sara Rún Hinriksdóttir

Lykill: Sara Rún Hinriksdóttir

Lykilleikmaður fyrstu umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður KR Sara Rún Hinriksdóttir.

Sara Rún Hinriksdóttir átti hreint stórkostlegan leik fyrir KR þegar liðið lagði Stjörnuna að velli, 94:87, í fyrstu umferð Bónusdeildar kvenna og sýndi svo um munaði hvers vegna hún er lykilleikmaður umferðarinnar. Andstæðingarnir lögðu gríðarlega mikla áherslu á að stoppa hana, en það kom alls ekki í veg fyrir stórleik.

Þrátt fyrir stanslaust áreiti og mikla gæslu lék Sara Rún af fádæma öryggi og yfirvegun og tapaði aðeins einum bolta allan leikinn. Hún spilaði í tæpar 27 mínútur og skoraði 25 stig á afar hagkvæmri skotnýtingu, setti meðal annars niður fjóra af sjö þristum sínum og nýtti sjö af átta vítum.

Sara Rún lét auk þess verulega til sín taka undir körfunni og reif niður 12 fráköst, þar af 10 í vörninni, ásamt því að gefa tvær stoðsendingar og stela tveimur boltum. Þessi glæsilega tvenna skilaði henni 30 framlagsstigum, sem var það hæsta á vellinum, og innsiglaði mikilvægan sigri KR.

Lykilleikmenn – Bónus deild kvenna:

  1. umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / KR
Fréttir
- Auglýsing -