HomeBónus deildinBónus deild kvennaSeiglu sigur Grindavík gegn meisturunum

Seiglu sigur Grindavík gegn meisturunum

Ósigrað lið Grindavíkur mætti í heimsókn til Íslandsmeistara Njarðvíkur í sannkölluðum toppslag Bónusdeildar kvenna í kvöld. Búist var að sjálfsögðu við hörku viðureign enda liðunum spáð velgengni á tímabilinu eða í raun efstu tveimur sætunum.

Gestirnir stigu varla feilspor fyrstu 5 mínútur leiksins og skoruðu grimmt. Staðan 14:9 og tempó leiksins gríðarlega hátt.  Á tímum hélt maður að leikmenn myndu klára eldsneytið á þessum upphafs mínútum leiksins.  Aðeins hægðist á gestunum og Njarðvík náði að jafna leikinn í 14 stigum. Eftir nokkuð hraðar og skemmtilegar loka mínúturu leikhlutans lokaði Sara Logadóttir þessum fyrstu 10 mínútum leiksins með þrist og Njarðvík leiddi 23:21.

Í liðunum má finna eitt allra skemmtilegasta par af bakvörðum deildarinnar í þeim Abby Beeman og Brittany Dinkins. Þær krydduðu svo sannarlega leikinn með hæfileikum sínum líkt og þær hafa gert síðustu ár.  Sami hraði og barátta speglaðist af fyrsta leikhluta og allt til hálfleiks. Njarðvík einhverju hænuskrefi á undan megnið af leikhlutanum en ekkert þannig að þær væru að ná tögl og höldum á leiknum í heild sinni. Staðan 53:47 í hálfleik og allt eins búist við svipuðu konfekti í seinni hálfleik og þeir fyrri.

Eftir um 100 stig frá liðunum í fyrri hálfleik voru aðeins komin 3 stig á töfluna á fyrstu 2 mínútum seinni hálfleiks. Mögulega báðir þjálfarar með sömu skilaboð, hægja á leiknum og herða vörnina. Já aldeilis ekki! Það var einmitt þarna að snemmbúin flugeldasýning hófst hjá liðunum þar sem þau skiptust á forystunni og körfurnar komu í öllum regnbogans litum.  Abdy Farhiya sem kom loksins Grindavík aftur yfir í leiknum með þrist um miðbik leikhlutans.  Það var hinsvegar með harðfylgi að Njarðvík leiddi með 2 stigum í stöðunni 75:73  þegar liðin gerðu sig tilbúin í loka 10 mínúturnar.

Þegar fjórði leikhluti var hálfnaður var varnarleikur Grindavíkur nánast vatnsþéttur! Njarðvikurliðið gersamlega ráðþrota í sókninni og möguleg þreyta auðvitað byrjuð að segja til sín. Leikmenn köstuðu boltanum á milli sín utan þriggjastiga línunar líkt og um einhverja handboltasókn væri að ræða. Á þessum kafla komu gestirnir sér í stöðuna 79:85 og 4:30 mínútur eftir að leiknum.  Eftir þessar mínútur voru Njarðvík alltaf að elta og á loka mínútu leiksins þegar Grindavík leiddu með 4 stigum tóku Njarðvík heil 4 þriggja stiga skot í sömu sókninni eftir hvert sóknarfrákastið á fætur öðru. Ekkert af þeim vildi ofaní og kannski sú ákvörðun að reyna bara þrist nokkuð vafasöm í stað þess að sækja bara tvö stig.  Það var svo Abby Beeman sem setti tvö stig og í raun ísaði leikinn í stöðunni 90:96 þegar um 14 sekúndur voru eftir.  Leikurinn endaði með sigri gestanna 93:97.

Leikurinn sem slíkur stóðst allar væntingar. Tvö stórkostleg lið sem að sýndu flotta takta á báðum endum vallarins og ljóst að þetta verður líkast til einvígið til að fylgjast með í vetur.  Vendipunktur leiksins er án nokkurs vafa varnarleikurinn sem að Grindavík skartaði í fjórða leikhluta þar sem að Njarðvíkursóknin var gersamlega ráðþrota og þarna þurfti leikmann annan en Brittany Dinkins til að stíga upp og taka af skarið.  Grindavík eru því en ósigraðar í deildinni á meðan Njarðvík var að tapa sínum öðrum leik í vetur.

Tölfræði leiksins.

Fréttir
- Auglýsing -