Jón Axel með 16 stig gegn Estudiantes

Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante töpuðu fyrir Estudiantes í Leb Oro deildinni á Spáni, 93-75.

Á tæpum 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 16 stigum, frákasti og 3 stoðsendingum.

Eftir leikinn er Alicante í 12. sæti deildarinnar með einn sigur og þrjú töp eftir fyrstu fjórar umferðirnar.

Tölfræði leiks