KV landaði mikilvægum sex stiga heimasigri gegn Þór Akureyri, 96–90, í sjöundu umferð Bæjarins bestu deildar karla í körfuknattleik á Meistaravöllum í kvöld. Vesturbæingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og leiddu með átján stigum eftir fyrsta leikhluta, 29–11, en gestirnir að norðan unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn og minnkuðu muninn niður í eitt stig á lokakaflanum.
KV hélt þó haus á lokamínútunum og landaði sigrinum, en þar fóru fremstir í flokki þeir Lars Erik Bragason með 33 stig og Finnur Tómasson með 29 stig.
Viðtal við Fal Harðarson, þjálfara KV, eftir leik má sjá í spilaranum hér að neðan.




