HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaGetum ekki litið á okkur sem alvöru lið ef við ætlum endalaust...

Getum ekki litið á okkur sem alvöru lið ef við ætlum endalaust að vera rosalega flottir þegar sólin skín og fara svo eitthvað inní okkur þegar það er þrengt að okkur

Breiðablik mátti þola níu stiga tap á útivelli gegn Selfossi, 99–90, þegar liðin mættust í sjöundu umferð Bæjarins bestu deildar karla í kvöld.

Blikar lentu tólf stigum undir í fyrri hálfleik en sýndu mikinn karakter í þriðja leikhluta þegar þeir snéru taflinu við og komust yfir, 70–75, áður en heimamenn tóku völdin á ný í lokafjórðungnum þrátt fyrir 41 stig frá Adrian Darren McIntyre.  

Viðtal við Hrafn Kristjánsson, þjálfara Breiðabliks, eftir leik má sjá í spilaranum hér að neðan.

Viðtal / Tómas Kárason

Fréttir
- Auglýsing -