Íslenska úrvalið taplaust í gegnum fyrstu keppnishelgina

Íslenskt úrvalslið skipað leikmönnum 14 ára og yngri tók þessa helgina þátt í fyrsta glugga evrópukeppni ungmennafélagsliða í Riga í Lettlandi. Leiknir voru fimm leikir á þessari fyrstu keppnishelgi og gerði íslenska liðið sér lítið fyrir og vann alla fimm.

Þeir eru því annað tveggja liða í keppninni sem vann alla leiki sína um helgina. Það gerðu einnig SKM frá Litháen, en næsta mót fer fram þar dagana 3.-6. janúar næstkomandi.

Hérna er hægt að skoða tölfræði og leiki mótsins í Lettlandi