Tryggvi Snær drjúgur gegn Barcelona

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao máttu þola tap gegn Barcelona í ACB deildinni á Spáni í dag, 91-82.

Á tæpum 17 mínútum spiluðum skilaði Tryggvi Snær 6 stigum, 6 fráköstum, stoðsendingu og 4 vörðum skotum.

Þrátt fyrir tapið í dag hefur Bilbao farið nokkuð vel af stað í deildarkeppninni, en eftir fyrstu sex umferðirnar eru þeir í 6. sæti deildarinnar með fjóra sigra og tvö töp.

Tölfræði leiks